Styrktarsjóðir stéttafélaga
Mörg stéttarfélög taka þátt í hluta kostnaðar við tæknifrjóvganir. Mismunandi er hvað mikinn þátt þau taka í kostnaði við meðferð.
Skattaafsláttur
Hægt er að sækja um afslátt frá skatti til Ríkisskattstjóra. Útbúið er sérstakt vottorð sem skila þarf með skattaskýrslunni.
Ferðavottorð
Tryggingastofnun ríkisins tekur þátt í ferðakostnaði þeirra sem búa úti á landsbyggðinni. Þá þarf að geyma bensínkvittanir og flugmiða.
Sjúkrahótel Rauða kross Íslands
Þeir sem búa á landsbyggðinni geta sótt um gistingu á sjúkrahóteli Rauða kross Íslands.
Ritari ART Medica sér um að útbúa vottorð/staðfestingu um meðferð til að framvísa í ofangreindum tilfellum ef óskað er eftir því.




