Karlmönnum sem greinast með krabbamein stendur til boða frysting á sæðisfrumum.
Sæðisfrumur eru geymdar í allt að fimm ár, í sumum tilfellum lengur.
Karlmönnum er ráðlagt að koma með nýtt sæðissýni tveimur árum eftir að krabbameinsmeðferð lýkur til að athuga frjósemi. Ef sæðisframleiðslan hefur jafnað sig er ekki nauðsynlegt að geyma frystu sæðisfrumurnar lengur.




